Auðvelt er að skipta um kort í kerfinu. Mörg kort eru í boði, Google maps, Microsoft Bing, Open Street og Open Weather Map. Síðan eru fleiri möguleikar í boði fyrir hvert kort eins og traffic eða satellite ásamt öllum vefmyndavélum Vegagerðarinnar.
WebGis er fyrirfram valda kortið sem flestir nota, það kemur í þremur útfærslum.
Microsoft Bing Road er mjög skýrt kort og sýnir nákvæm kennileiti. Það kemur í þremur útgáfum, Aerial, Hybrid og Road.
Bing Traffic sýnir hvar mesta umferðin er og ef bílar eru stopp þá kemur rauð lína.
Vegagerðin er með vefmyndavélar á um 200 stöðum við vegakerfi landsins. Nýjar myndir eru sóttar nokkrum sinnum á hverri klukkustund. Hægt er velja hvaða vélar sjást á kortinu.
Byggt á gögnum frá Vegagerðinni. Leyfi, samkvæmt 31. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 og lögum um landmælingar og grunnkortagerð nr. 103/2006, fyrir gjaldfrjáls gögn frá Vegagerðinni.
Auðvelt er að mæla vegalengd á öllum kortum.
