Beintenging án GPS tækis (OEM telematics)
Flestir nýjir bílar, sérstaklega rafmagnsbílar koma með búnaði sem sendir upplýsingar um bílinn beint til framleiðanda. Þau gögn eru til dæmis notuð í appi fyrir bílinn. Rakning getur fengið aðgang að þessum gögnum beint frá mismunandi framleiðendum og birt í okkar lausn ásamt öðrum bílum sem eru með hefðbundið GPS tæki. Ein lausn fyrir allan flotann!
Við styðjum tengingu við eftirfarandi framleiðendur
- BMW Group (BMW og Mini)
- Mercedes-Benz Group
- Volkswagen Group (Skoda, VW, VW atvinnubílar, Porsche og Audi)
- Stellantis (Citroen, Fiat, Jeep, Opel, Peugeot)
- Renault Group (Renault og Dacia)
- Ford
- Hyundai Motor Group (KIA og Hyundai(væntanlegt))
- Toyota Motor Corp (Toyota og Lexus)
- Tesla
- Volvo Cars
- Polestar
