Rauntíma staðsetning Kerfið sýnir hvar öll ökutæki eru í rauntíma og uppfærir kortið á 2 sekúndna fresti. Þegar ökutæki hreyfast er stefnan sýnd.Hægt er að velja ákveðin ökutæki og fá þau í sér glugga til að fylgjast betur með þeim. Ef um mörg ökutæki er að ræða þá er hægt að flokka þau í grúbbur og sýna þær eða handvelja ákveðin ökutæki sem birtast vinstra megin við kortið.